FRÉTTIR

Viðskiptatækifæri í Xiamen

 Borgarsýn Xiamen

Málþing um viðskiptatækifæri í Xiamen-borg í Kína verður haldið á Hótel Sögu 30. maí næstkomandi kl. 10-11.30. Að málþinginu standa Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Íslandsstofa, Sendiráð Alþýðulýðveldisins Kína og borgarstjórn Xiamen. Viðskiptasendinefnd frá Xiamen verður stödd á Íslandi og verða fulltrúar frá yfirvöldum og fyrirtækjum í borginni viðstaddir málþingið, sem fer fram á ensku og kínversku. 

Dagskrá:

Huang Feng, aðstoðarframkvæmdastjóri utanríkismálaskrifstofu Xiamen-borgar setur málþingið.

Introduction to Xiamen
Ni Chao, varaborgarstjóri Xiamen

Iceland – China relations
Zhang Weidong, sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína í Reykjavík

Chinese visitors to Iceland, opportunities and challenges
Ársæll Harðarson, formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins

Invest in Iceland – free trade opportunities
Kristinn Hafliðason, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu

Business opportunities in Xiamen City
Huang Feng, aðstoðarframkvæmdastjóri utanríkismálaskrifstofu Xiamen-borgar

China International Fair for Investment and Trade
Cai Weihua, varadeildarstjóri á ráðstefnu- og sýningaskrifstofu Xiamen-borgar.

Að lokinni formlegri dagskrá er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi ráðrúm til að blanda geði við fulltrúa fyrirtækja og samtaka á málþinginu og skiptast á nafnspjöldum.

Málþingið verður haldið á Hótel Sögu, salnum Hekla I á annarri hæð.

Umsókn um aðild að viðskiptaráðinu

Fyrirtækjum er raðað í gjaldflokka eftir fjölda starfsmanna. Í fyrsta flokki eru fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn 1. fl. kr. 15.000. Í öðrum flokki eru fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri 2.fl. kr. 30.000.

Gjaldflokkur

15 + 12 =

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Hús verslunarinnar

Kringlunni 7

103 Reykjavík

+354 5888910

[email protected]

4 + 15 =