FRÉTTIR

Fulltrúar frá Foshan funda með ÍKV

Íslensk-kínverska viðskiptaráðið tekur í vor og sumar á móti þremur viðskiptasendinefndum frá Foshan-borg í Kína. Stjórn og framkvæmdastjóri ÍKV funduðu með þeirri fyrstu í húsakynnum félagsins í morgun.

Foshan er átta milljóna manna borg í Guangdong-héraði í Kína og blómstrar þar margvíslegur iðnaður og viðskipti. Á meðal helstu útflutningsvara borgarinnar eru byggingavörur, heimilistæki og ál. Á meðal fulltrúa í sendinefndinni var Qiao You, varaborgarstjóri Foshan.

Á fundinum var rætt um viðskipti Íslands og Kína og gagnkvæmar fjárfestingar. Fulltrúar Foshan lýstu meðal annars áhuga Kínverja á heilsuvörum frá Íslandi, til dæmis lýsi. Þá var rætt um þróun ferðamennsku og möguleika á beinu flugi milli Íslands og Kína.

Umsókn um aðild að viðskiptaráðinu

Fyrirtækjum er raðað í gjaldflokka eftir fjölda starfsmanna. Í fyrsta flokki eru fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn 1. fl. kr. 15.000. Í öðrum flokki eru fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri 2.fl. kr. 30.000.

Gjaldflokkur

7 + 11 =

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Kirkjubraut 40

300 Akranes

[email protected]

[email protected]

7 + 11 =