FRÉTTIR

Fjölsóttur áramótafögnuður

 

Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og Kínversk-íslenska menningarfélagið héldu vel sóttan áramótafagnað í gærkvöldi. Því var fagnað að ár apans gengur í garð í Kína. 

Yfir 50 manns mættu í kvöldverð á kínverska veitingahúsinu Tian á Grensásvegi. Hafliði Sævarsson verkefnastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta Háskóla  Íslands hélt erindi um hrun hlutabréfamarkaðarins í Kína og efnahagshorfur almennt. Þá flutti Halldór Zhan Xinyu, sem stundar nám í íslensku, stutta tölu. Gerður var góður rómur að máli beggja, en gestir stóðu upp og klöppuðu fyrir Halldóri sem hefur á stuttum tíma náð góðum tökum á íslenskunni og sló um sig með orðatiltækjum á borð við „grunaði ekki Gvend.“

Stöð 2 sendi út beint frá Tian í upphafi áramótafagnaðarins og ræddi við Arnþór Helgason formann KÍM. 

Útsending Stöðvar 2

Umsókn um aðild að viðskiptaráðinu

Fyrirtækjum er raðað í gjaldflokka eftir fjölda starfsmanna. Í fyrsta flokki eru fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn 1. fl. kr. 15.000. Í öðrum flokki eru fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri 2.fl. kr. 30.000.

Gjaldflokkur

12 + 12 =

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Hús verslunarinnar

Kringlunni 7

103 Reykjavík

+354 5888910

[email protected]

5 + 2 =