Viðskiptasendinefnd frá Dalian í Kína, sem heimsótti ÍKV í síðustu viku, býður íslenskum fyrirtækjum ókeypis bása á vörusýningu sem fram fer í borginni í maí næstkomandi. Sýningin kallast á ensku „The 32nd Dalian Import an Export Commodities Fair“ og verður haldin 17.-20. maí 2018.
Sendinefndin átti fund með stjórn og framkvæmdastjóra Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins og setti þar fram þetta góða boð. Einn af aðstandendum sýningarinnar er Alþjóðaviðskiptaráð Kína, CCPIT, sem er samstarfsaðili ÍKV.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Félags atvinnurekenda. Fyrirspurnir um sýninguna og fyrirkomulag hennar má senda á Cheng Gang, [email protected].