FRÉTTIR

Merki matvælaviðskiptaráðs Kína

Jónína Bjartmarz, formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, skrifaði fyrr í mánuðinum undir viljayfirlýsingu um aukið samstarf viðskiptaráðsins og Matvælaviðskiptaráðs Kína (China Chamber of Commerce of Foodstuffs and Native Produce, CFNA).

Undirritunin fór fram í Sjanghæ, á Samstarfsráðstefnu Kína og Norðurlanda um viðskipti og efnahagsmál (2018 China-Nordic Economic and Trade Cooperation Forum), en bæði ÍKV og CFNA voru á meðal aðstandenda ráðstefnunnar. Bian Zhenhu, forseti CFNA, undirritaði viljayfirlýsinguna ásamt Jónínu. Viljayfirlýsingin velur í sér aukið samstarf ráðanna og gagnkvæma aðstoð við aðildarfyrirtæki, með það að markmiði að efla viðskipti með sjávarafurðir og landbúnaðarvörur milli Íslands og Kína. ÍKV og CFNA áttu árangursríkt samstarf á dögunum þegar haldið var málþing um matvöruviðskipti ríkjanna í Reykjavík.

Viðstaddir undirritunina voru meðal annars Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Kína, og kínverskir, sænskir og norskir ráðherrar og aðstoðarráðherrar. Fleiri viljayfirlýsingar milli kínverskra og norrænna fyrirtækja og samtaka voru undirritaðar á ráðstefnunni eins og lesa má á vef CFNA.

 

Umsókn um aðild að viðskiptaráðinu

Fyrirtækjum er raðað í gjaldflokka eftir fjölda starfsmanna. Í fyrsta flokki eru fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn 1. fl. kr. 15.000. Í öðrum flokki eru fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri 2.fl. kr. 30.000.

Gjaldflokkur

10 + 15 =

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Hús verslunarinnar

Kringlunni 7

103 Reykjavík

+354 5888910

[email protected]

14 + 11 =