Íslensk-kínverska viðskiptaráðið (ÍKV) auglýsir eftir tilnefningum til gestrisniviðurkenningar ÍKV.
Viðurkenningin verður veitt í fyrsta sinn á aðalfundi ÍKV í maí. Hún er veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki eða stofnun sem hefur öðrum fremur stuðlað að því að bæta móttöku kínverskra ferðamanna og að kínverskum gestum á Íslandi finnist þeir velkomnir og öruggir.
Tilnefningar, ásamt rökstuðningi, skulu sendar til framkvæmdastjóra ÍKV á netfangið [email protected], fyrir 13. apríl næstkomandi. Dómnefnd velur úr innsendum tilnefningum.