Í tilefni af kínversku áramótunum munu Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og Kínversk-íslenska menningarfélagið fagna ári hanans föstudaginn 3. febrúar kl. 19.00 á Veitingahúsinu Tian, Grensásvegi 12, 108 Reykjavík. Nýárskvöldverður ÍKV og KÍM er orðinn árviss viðburður. Borðhaldið hefst kl. 19.30.
Heiðursgestur verður Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi og flytur hann ræðu kvöldsins.
Á matseðlinum verða
Blönduð sjávarréttasúpa
 Djúpsteikt ýsa með sætri engifersósu
 Kjúklingur með drekasósu
 Svínakjöt með appelsínusósu
 Djúpsteikar rækjur með súrsætri sósu
 Nautakjöt í svartpiparsósu
 Heimagert tofu með grænmeti í ostrusósu
 Steikt spergilkál með hvítlauk
 Dumplings (fylltir hveitisnúðar)
 Hrísgrjón, te og ávextir
Búist er við talsverðri aðsókn og er fólk því vinsamlegast beðið að panta tímanlega. Pantanir má senda á netfangið [email protected] eða í síma 897 3766. Pantanir berist í síðasta lagi miðvikudaginn 1. febrúar fyrir kl. 22.00.

					
