Ágætu félagsmenn í Íslensk-kínverska viðskiptaráðinu.
Í tilefni af kínversku áramótunum 2024 efnum við í samstarfi við KÍM, Kínversk-íslenska menningarfélagið, til áramótafagnaðar fimmtudaginn 8. febrúar n.k. Þar fögnum við saman ári drekans, sem þá verður nýgengið í garð.
Kvöldverðurinn verður haldinn á veitingahúsinu Shanghai í Pósthússtræti 13, við hliðina á Hótel Borg og hefst kl. 19.
Auk ávarps sendiherra Kína á Íslandi, He Rulong, þá hlýðum við á frásagnir félaga okkar og njótum tónlistar!
Beatriz García – Samskiptastjóri Huawei á Íslandi segir frá ævintýrinu sínu í Shanghæ og Peking þar sem hún eignaðist fyrsta barnið sitt, stofnaði bardagaíþróttarskóla og varð ástfangin af Kína.
Arnar Steinn – formaður kínversk-íslenska menningarfélagsins mun segja frá námsárum sínum og ævintýrum á árunum 2001-2006 þegar hann bjó í Guangzhou í Suður Kína.
Jakob Frímann tónlistar – og alþingismaður rifjar upp Kínafõr Stuðmanna árið 1986 með nokkrum vel võldum sõngvum og frásõgnum.
Í boði verða vinsælir kínverskir réttir fyrir kr. 6.500 pr. mann:
Fried spring rolls & prawn crackers 春卷&虾片 – Deep fried shrimps 炸虾 – Honey glazed Pork 蜜汁猪 – Kung Pao Chicken 宫保鸡 – Crispy duck with Beijing sauce 脆皮鸭配北京甜酱 – Black pepper beef 黑胡椒牛肉 – Shredded pork w garlic sauce 蒜爆猪肉 – Fried noodles with vegetables 素炒面 – Tofu with Sichuan sauce 四川豆腐
Include tea – rice – fruits 茶+米饭+水果 含
Við hlökkum til að eiga hlýja og notalega stund saman á Shanghai þann 8. feb. n.k. – Við hvetjum eindregið alla félaga í íKV og KÍM til að mæta vel og bjóða gesti/gestum með sér.
Vinsamlegast skráið ykkur og gesti ykkar HÉR á vef ÍKV – fyrir 6. febrúar n.k.
Ef einhverjar spurningar um þennan viðburð vakna þá bendum ykkur við á netfangið [email protected]
Stjórn ÍKV