Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína

-Eftir Jónína Bjartmarz, Formaður ÍKV-

Markmið og tilgangur Íslensk – kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV) er að viðhalda og efla viðskiptatengsl milli landanna.  Jafnframt efla hvers konar tengsl á sviði menntunar og menningar.  – Aðilar að þessu gamalgróna áhugamannafélagi  eru rétt um  80 fyrirtæki, flest þegar í viðskiptum við Kína – ýmist í innflutningi eða útflutningi.

Óumdeildar staðreyndir –   engin þörf að segja „já til að sjá“.

Mögulega eru forsvarsmenn aðildarfélaga ÍKV ekki alveg allir sama sinnis þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst n.k.  En í  ljósi tilgangs ráðsins teljum við okkur bæði rétt og skylt að halda til haga staðreyndum og upplýsa  um hvaða áhrif aðild að Evrópusambandinu hefði fyrir þessi fyrirtæki og almennt fyrir viðskipti milli Íslands og Kína.  Allt staðreyndir og upplýsingar sem ekki þarf að „kíkja í pakkann“  til að sjá –  og skilja hvað ESB aðild fylgir.     

Fríverslunarsamningurinn  við Kína.

Samningur um fríverslun á milli Íslands og  Kína tók gildi árið 2014.  Sá samningur myndi  falla niður við aðild að ESB, líkt og aðrir fríverslunarsamningar sem Ísland hefur gert sem sjálfstætt og fullvalda ríki.  Samningurinn við Kína  hefur þegar leitt af sér stóraukin viðskipti milli landanna og bæði fyrirtæki og fjölskyldur hafa notið góðs af tollfrelsinu jafnt á innfluttar vörur og í útflutningi til Kína.  Og það munar um minna enda Kína orðið annað stærsta viðskiptaland Íslands og viðskipti milli landanna jukust á árinu 2025 á sama tíma og viðskipti við Evrópusambandslönd drógust saman.  – Með aðild að ESB yrði einnig endir bundinn á þá hagkvæmu þróun sem orðið hefur undanfarin ár; að Íslendingar kaupa vörur frá Kína  – beint og milliliðalaust –  í stað þess að kaupa sömu vörur á mun hærra verði í gegnum milliliði í Evrópu eða Bandaríkjunum.

Stóraukin tækifæri í útflutningi – með beina fluginu.

Með tilkomu beina flugsins milli Keflavíkur og Peking sem mun hefjast 26. okt. n.k. skapast að auki stóraukin tækifæri fyrir tollfrjálsan  útflutning m.a. á ferskum sjávarafurðum og eldisfiski til Kína.  Tækifæri sem færu forgörðum ef við yrðum aðilar að ESB. Tollfrelsið sem samningurinn tryggir okkur skapar íslenskum útflutnings-fyrirtækjum greiðari aðgang inn á markaði í Kína og tryggir þeim samkeppnishæfni umfram önnur lönd sem ekki njóta fríverslunarsamnings.  Fyrir Ísland væri þetta jafnframt tækifæri til að jafna viðvarandi halla í vöruviðskiptum til hagsbóta fyrir þjóðarbúið.

Mun dýrari innflutningur frá Kína – með aðild að tollabandalagi ESB.

Þrátt fyrir hugsanlega aðild að ESB yrði auðvitað áfram hægt að flytja inn vörur frá Kína,  en þær yrðu mun dýrari því  ESB nýtur ekki fríverslunarsamnings  eins og Ísland. Með aðild að ESB yrðum við því seld undir tolla – og gjaldareglur sambandsins sem myndi leiða til verðhækkana á Íslandi og auka verðbólgu.  Sem dæmi má nefna að tollar ESB á bifreiðar frá Kína eru frá 17% og upp í 35% og á fatnað leggjast 12% og upp í 70% tollar.

Takmarkanir og bönn ESB – allt til verndar framleiðendum á meginlandi Evrópu.

Að viðbættum tollum ESB þá yrðum við einnig seld undir alþjóðaviðskiptareglur sambandsins, margs konar tæknilegar hindranir,  takmarkanir og bönn við margvís-legum birgjum og  vörum  – allt  til verndar framleiðendum á meginlandi Evrópu.  Við myndum glata öllu því svigrúmi sem við nú höfum til sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar í þessum efnum.

Hægari hagvöxtur í ESB og sífellt veikari samkeppnishæfni.

Í þessu samhengi er og vert að halda til haga öðrum óumdeildum staðreyndum,  s.s. þeirri að hægst hefur á hagvexti í ESB.  Samkeppnishæfni sambandsins er einnig að  veikjast og á sviði nýsköpunar standa bæði Bandaríkin og Kína því langtum framar – enda verður regluverk ESB  sífellt meira íþyngjandi.   Þau eru þegar mörg dæmin um að íslenskt hugvit og tækni hafi blómstrað, borið ávöxt og  orðið að sterkum alþjóðlegum fyrirtækjum, allt  utan  ESB –  en ekki kafnað í regluverkinu innan þess.

Allt það sem segir hér að framan eru fyrst og síðast rök gegn aðild Íslands að ESB.

Langflest okkar eru auk þess þeirrar skoðunar að verði já-ið ofan á 29. ágúst með eftirfarandi aðildarviðræðum þá yrði það Íslandi dýrtkeypt og veikti strax stöðu okkar í   samskiptum og viðskiptum við lönd utan sambandsins. Bæði til vesturs og austurs.

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Kirkjubraut 40

300 Akranes

ikv@ikv.is

ikv@ikv.is

14 + 7 =