Aðalfundur Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV) verður haldinn miðvikudaginn 29. maí næstkomandi kl. 15. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Í beinu framhaldi af aðalfundinum, kl. 15.30, verður haldið málþing um samstarf Kína og Íslands í orkumálum.
Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:
15.30 Opnun málþingsins – Jónína Bjartmarz, formaður ÍKV
15.35 Ávarp – Jin Zhijan, sendiherra Kína á Íslandi
15.45 Jarðhitaauðlindin í Kína – Guðni Axelsson, sviðsstjóri kennslu og þróunar hjá ÍSOR
16.05 UNU Geothermal training programme in Iceland: Role in capacity building for China’s geothermal energy development – Tingting Zheng, doktorsnemi við Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og Háskóla Íslands.
16.25 Jarðhitavæðing í Kína – uppbygging á íslenskum grunni – Einar Rúnar Magnússon, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Arctic Green Energy
16.45 Pallborðsumræður
17.00 Léttar veitingar
Dagskrá aðalfundarins, skv. samþykktum ÍKV:
• Stjórn félagsins skýrir frá störfum félagsins.
• Stjórn félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga fyrir síðasta ár.
• Kjör tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
• Kjör skoðunarmanns.
• Önnur mál.
• Fundarslit.