Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og atvinnurekendadeild Félags kvenna í atvinnulífinu efna til málþings um Kínaviðskipti þriðjudaginn 30. maí, kl. 15.30. Nokkrir frumkvöðlar ræða viðskipti við Kína á sviði framleiðslu, innflutnings og útflutnings.
Á undan málþinginu, kl. 15 verður haldinn aðalfundur Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV).
Dagskrá:
15.30 Ársæll Harðarson, formaður ÍKV: Málþingið opnað
15.35 Páll Þór Sigurjónsson og Sigurjón Pálsson, hönnuðir og húsgagnasmiðir:
Íslensk hönnun – gæðavara sótt til Kína
16.00 Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica:
Nægt hráefni fyrir framleiðslu og útflutning til Kína
16.25 Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður:
Hönnun er framleiðsla
Að málþinginu loknu verður boðið upp á léttar veitingar.
Málþingið verður haldið í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Skráning er á vef Félags atvinnurekenda.