Aðalfundur ÍKV 2026 var haldinn þann 15. júlí sl. Líkt og undanfarin ár buðu Center Hotels fram sal fyrir fundinn og kann stjórn þeim bestu þakkir fyrir.
Dagskrá aðalfundar skv. 9. gr. samþykkta félagsins var eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar.
- Ársreikningur kynntur og borinn undir atkvæði.
- Kosning formanns.
- Kosning annarra stjórnarmanna.
- Kosning skoðunarmanns.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Í framhaldi af skýrslu stjórnar og kynningu á ársreikningi var gengið til kosninga um formann. Jónína Bjartmarz gaf kost á sér til endurkjörs. Engin mótframboð bárust og var hún því sjálfkjörin.
Því næst var kosið um sæti þriggja annarra stjórnarmanna. Þeir Árni Páll Einarsson, Einar Rúnar Magnússon og Ólafur Hannesson voru einnig sjálfkjörnir til áframhaldandi stjórnarsetu.
Aðrir sitjandi stjórnarmenn eru Beatriz Garcia, Guðmundur Ingason og Magnús Árnason.
Ákveðið var að halda félagsgjöldum fyrirtækja óbreyttum (35.000kr fyrir stærri fyrirtæki og 18.000kr fyrir minni) en samþykkt var að bæta við flokki til að gefa einstaklingum tækifæri á að gerast aðilar að ráðinu gegn hóflegu gjaldi (10.000kr).
Eftir að hefðbundnum aðalfundarstörfum lauk spunnust fjörugar umræður. M.a. um mikilvægi og framtíð fríverslunarsamningsins milli Íslands og Kína. Einnig var rætt um hvernig best mætti nýta tækifæri sem skapast samhliða beinum flugum til Kína.
