Hvernig tökum við á móti ferðamönnum frá Kína? Fundur 22. janúar
ÍKV vekur athygli félagsmanna sinna á fundi Íslandsstofu með Pétri Yang Li, viðskiptafulltrúa sendiráðs Íslands í Kína:
Í tilefni af heimsókn Péturs Yang Li, viðskiptafulltrúa sendiráðs Íslands í Kína, boða Íslandsstofa og viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins til opins kynningarfundar miðvikudaginn 20. apríl nk. Á fundinum fjallar Pétur um stöðu og þróun efnahagsmála í Kína og stefnu þarlendra stjórnvalda í alþjóðasamstarfi, með áherslu á viðskipti, fjárfestingar og ferðaþjónustu. Þá veltir hann upp möguleikum í samstarfi Íslands og Kína á þessum sviðum.
Fundurinn er á Grand Hótel Reykjavík kl. 15.00-16.15 og er öllum opinn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á [email protected] eða í síma 511 4000.