Framkvæmdastjóri og stjórnarmenn ÍKV með sendinefndinni frá Dalian

Viðskiptasendinefnd frá Dalian í Kína, sem heimsótti ÍKV í síðustu viku, býður íslenskum fyrirtækjum ókeypis bása á vörusýningu sem fram fer í borginni í maí næstkomandi. Sýningin kallast á ensku „The 32nd Dalian Import an Export Commodities Fair“ og verður haldin 17.-20. maí 2018.

 

Sendinefndin átti fund með stjórn og framkvæmdastjóra Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins og setti þar fram þetta góða boð. Einn af aðstandendum sýningarinnar er Alþjóðaviðskiptaráð Kína, CCPIT, sem er samstarfsaðili ÍKV.

 

Nánari upplýsingar er að finna á vef Félags atvinnurekenda. Fyrirspurnir um sýninguna og fyrirkomulag hennar má senda á Cheng Gang, chenggang@ccpitdalian.org.

Íslensk Kínverska Viðskiptaráðið

Kirkjubraut 40

300 Akranes

ikv@ikv.is

ikv@ikv.is

6 + 8 =